...Alveg að koma helgi !....

Trick or Treat, ewery body ?!* Wink

Gærdagur:

Í gær var Halloween Wizard. Þór var draugur og ég norn. Skóla dagurinn var meira að segja frábær á þessum degi Halo. Við Jaqueline og Melina Riese vorum búnar að mæla okkur mót kl. 18:00 um kveldið.....En byrjum á hinu, ég kom heim úr skólanum og þá voru íslendingar í heimsókn hjá okkur. (sem að áttu heima í Berlin)...Húff, einhvern tíman fær maður að tala íslensku við eitthvað fólk hérna í Berlin Blush. Ég var alltaf að ruglast og tala pínu Þýsku við þau Tounge. Jáá... Við gerðum okkur klár og fórum svo öll saman í boð til Mariu og fjölskyldu sem eru líka íslendingar Joyful. Þar vorum við frá kl. 16:00 - 17:30, alltof stutt!. En þá vissi ég að ég væri að fara að gera líka eitthvað annað skemmtilegt.... Mamma skuttlaði mér til þeirra og þá fórum við að labba í hús, suess oder sauer, heitir það á þýsku Cool. Fengum frekar mikið nammi Tounge.  Eða mömmu fannst það.... Við býttuðum og borðuðum smá af namminu okkar. Mamma vildi síðan bæta upp að ég hafi verið svona stutt í boðinu þannig að við fórum aftur í smá stund þangað. Ég sá að ég var búin að gleyma að gera heimalærdóminn í NaWi svo að ég hafði það bara kósí uppí, á meðan að ég var að læra. Ég var reyndar svo þreytt eftir þennan dag þannig að ég gerði þetta ekki alveg að bestu list Sleeping.

Dagurinn í dag:

Ég kom heim úr stuttum dag, sem var búin að vera mjög fínn kl. 12:40 Joyful. Þá var Þórsarinn farinn í Hort, sem er einhverskonar skólaskjól. Þá höfðum ég og mamma góðan tíma fyrir okkur mæðgurnar svo að við fórum 2. í DAS SCHLOSS sem þýðir : Höllin, það er GG flott verslunarmiðstöð. Við ætluðum að kaupa buxur en þær voru ekki jafn flottar og ég hugsaði mér þannig að við létum það bara eiga sig Errm. En þá bauð mamma mér bara upp á eitthvað að borða og drekka og við fórum aðeins að skoða okkur um. Mamma sagði að við þurftum að fara að fara heim út af því að það var einhver byggingamaður  að koma til okkar, sem að kom á endanum auðvitað ekki.

Kv. Lara Heart

P.s. Tanja, ertu að fara til Voppnó ?*  Flutningur til Berlínar ág-okt 024Flutningur til Berlínar ág-okt 028


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ Lara Vala,

 Gaman að heyra frá þér svona í gegnum netið, sýnist sem svo að lífið í Berlín sé bara fínt hjá þér :)

Vonandi skemmtið þið ykkur vel í Fantasialand, ég fór víst einusinni þangað með Þóru (man ekkert eftir því) :)

Bestu kveðjur frá Íslandi,

Bjarni

ps. Voðalega eru þetta margar Blog síoður sem þú ert með í gangi :)

Bjarni Páls. (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 01:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband