6.11.2007 | 19:47
Æi...Sorry, er ekkert búin að blogga :(
'Æi, sorry.
Ég er ekkert búin að blogga síðan að það var langt í síðustu helgi . Ég myndi auðvitað gera það en þið vitið ekki hvað það er mikið vesen að vera að flytja svona, ég hef því miður engann tíma . En ekki meira um það....
Um þessar mundir er mikið að gerast. Ég ætla ekkert að vera áð segja mikið frá síðustu dögum, enda er ekkert mikið búið að gerast. En núna.... Í dag vaknaði ég á skrítin og mjög fyndnan hátt: Þegar að pabbi var að reyna að vekja mig, þá var mig ábiggilega búin að vera að dreyma ekkert smá fast um Hringrás Náttúrunnar. Því að þegar ég var ennþá hálf sofandi , sagði ég við pabba: "Ég skal segja þér Hringrás Náttúrunnar " Hann var auðvitað mjög hissa!*. Ég skildi ekkert í mér þegar ég vaknaði! Já, svona var þessi ótrúlega skrítni morgunn. En skólinn: Fyrstu 4. tímarnir góðir, en ekki hvað... En svo er þetta leiðinda Sport sem þarf endilega að vera í... 3. TÍMA!!!!! Það er ekkert smá mikið... Við vorum í einhverjum ógó leðó leik sko... Sem maður þurfti að hlaupa ekkert smá mikið! En það versta var að ég átti að koma með Line (Jaqueline) heim og greyið littla slasaði sig bara í þessum hamagangi!. Ég Danjela og Denise, fórum með Line. Ég vorkenndi henni . Hún þurfti að hoppa á einum fæti næstum alla leiðina, sem er ekkert við fórum niður í skóla að sækja skólatöskurnar okkar og fórum á klóið. Já, og svo komum við í Schueler Klub, borðuðum (við vorum orðnar gg svangar!!) Og fengum Jelly í eftir rétt. Síðan fórum við að baka svona pínulitla kleinuhringi sem að heita Donuts. Við máttum skreita þá líka! Með súkkulaði, og Glassúr í mörgum litum, o.f.l.. Mamma kom að sækja mig og við fórum heim að borða kvöldmat .
En svo er líka stór dagur á morgun. Á morgun ætlum við nýju krakkarnir að ákveða partýið okkar sem verður fyrir allan bekkin og haldið heima hjá mér. Þetta er svo spennó. Þannig að Melina Lemcke (stelpa), Moana (stelpa), Björn (strákur), Valerian (strákur), koma öll heim með mér á morgun . En það er ekki allt... Mamma er að fara á Tónleika á morgun og bauð okkur með!! . Palli og Sóley koma líka og við þurfum ábiggilega að sækja þau út á flugvöll og fara svo á Tónleikana. Segji ykkur vonandi frá þessum degi á morgun eða á hinn.
- Lara
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.