Ég á bestu mömmu í heiminum!

Í gær, þegar að stelpurnar fóru...; þá leið mér sko ekki vel. Mér var óglatt og ég var alveg hrikalega leið. Mamma vorkenndi mér rosalega, reyndi að keyra alveg rosalega hratt heim og langaði greynilega mest að faðma mig í gegn akstursinns. Við komum heim og þetta var ekkert búið að batna, ég sagði við mömmu hálfgrátandi við kvöldmatarborðirð "Mamma, má ég vera heima á morgun?" hún hugsaði sig ekkert um og svaraði: "Það getur vel verið að við ákveðum það." Við fórum þar næst öll 3 saman upp í rúm og horfðum á "Wer wird Millionär" Það er einhver spurningakeppni. Mamma valdi síðan bók, sem að varð "Hrói bjargar jólunum" sem að hún las þar næst. Þegar allir voru orðnir þreyttir og mamma gat ekki lesið meira, slökkti hún ljósið og ég sofnaði með tárin í augunum.

Þegar að ég vaknaði daginn eftir (í dag) sá ég að klukkan var orðin of margt í það að mamma hafi breytt um skoðun svo að ég svaf dálítið lengur. Eftir dálitla stund kom mamma upp í og við kúrðum dálítið saman. Við fórum síðan bara að borða morgunmat og drekka te í rólegheitum. Síðan fórum við mæðgurnar í sturtu og undirbúðum okkur af því að dedó ætlaði að bjóða okkur og konu sem að vinnur í Íslenska sendiráðinu í hádeigismat. Það var bara mjög fínt en ég held að ég hafi borðað aðeins og mikið, af því að leiðin heim var ekkert sérlega löng en mér var orðið svo óglatt Sick. Við komum síðan bara heim og ég fór í tölvuna, mamma er með Þór í fiðlu en kemur að sækja mig þangað eftir svona hálftíma. Þá ætlum við í einhverja bómabúð og svoleiðis. Mér líður orðið ekkert sérlega vel ennþá en...  Ég er kvíðin fyrir skólanum á morgun. Ég get alveg..ohh, það er erfitt að útskýra þetta. Ég er bara ekki alveg búin að átta mig á öllu þessu, að þið komið og farið...hvað það getur tekið til sín margar tilfinningar.

Nú er það bara að bíða eftir mömmu. Mér fannst allavega rosalega gott að vera svona einn dag heima, en ég veit að ég verð að harka af mér Undecided.

Kv. Lara - sem á bestu mömmu í heimi!

Mego og Iris í Berlín 2007 037

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæhæ Lara mín ekki gott að þú hefur verið eitthvað slöpp en bara að minna þig á að þetta var ROSA gaman eins og sést á myndini

kv. Melkorka Besta

Melkorka Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 15:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband